---
title: "Meistaraskólinn"
description: "Iðnmeistaranám á sér stoð í iðnaðarlögum svo og lögum og reglugerðum um framhaldsskóla. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er menntamálaráðuneytinu skylt að halda uppi framhaldsnámi fyrir iðnsveina til…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/meistaraskoli"
---

# Meistaraskólinn

Iðnmeistaranám á sér stoð í [iðnaðarlögum](https://www.althingi.is/lagas/nuna/1978042.html) svo og lögum og reglugerðum um framhaldsskóla. Samkvæmt lögum um framhaldsskóla er menntamálaráðuneytinu skylt að halda uppi framhaldsnámi fyrir iðnsveina til meistaraprófs í því skyni að veita aukna þekkingu í starfsgrein sinni, stjórnun og rekstri fyrirtækja. Í reglugerð um framhaldsskóla segir að meistaranám skuli skipuleggja sem eðlilegt framhald iðnnáms og að það skuli, eftir því sem við verði komið, tengt iðnfræði- og tæknifræðinámi. [Ný námskrá](https://island.is/framhaldsskolanam) iðnmeistaranáms hefur tekið gildi og er meistaranámið skipulagt skv. henni frá og með janúar 2019. Þeir sem hófu nám skv. eldri námskrá færast yfir í þá nýju.

Markmið meistaranáms er að veita þeim sem lokið hafa sveinsprófi fræðslu og þjálfun svo þeir geti fengið meistarabréf og staðið fyrir sjálfstæðum rekstri í iðngrein sinni, stjórnað verkum og kennt nýliðum vinnubrögð, öryggisreglur og iðnfræði.

Eingöngu löggiltir rafverktakar mega taka að sér rafverktöku og/eða annast viðgerðir á hvers kona rafföngum. Upplýsingar um löggildingu rafverktaka, kröfur um menntun, starfsreynslu og fleira varðandi rafmagnsöryggi má finna á vef [Húsnæðis og mannvirkjastofnunar](https://hms.is/mannvirki/rafmagnsoryggi).

Iðnmeistarar gegna ólíkum [störfum og hlutverkum](https://www.rafmennt.is/meistaraskoli/storf-idnmeistara) og vinna við mismunandi aðstæður allt eftir eðli starfseminnar, stærð fyrirtækis og stöðu meistara innan fyrirtækis. Í litlu iðnfyrirtæki af þeim toga sem hvað algengust eru hér á landi er meistarinn allt í senn; atvinnurekandi, stjórnandi, faglegur leiðtogi og kennari eða leiðbeinandi. Í stærri fyrirtækjum er um að ræða hreinni verkaskiptingu og hefur það færst í vöxt að viðskiptamenntað fólk sjái um fjármálahlið fyrirtækisins en meistarar gegni aðallega stjórnunarstörfum og faglegri umsjón og leiðsögn.

Source: https://www.rafmennt.is/meistaraskoli
