Nú er starfsemi Rafiðnaðarskólans á vorönn lokið og undirbúningur fyrir haustönnina hafinn.

Skipulag námskeiða á haustönn er að langmestu leiti komið inn á heimasíðuna og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér framboð námskeiða og skrá sig tímanlega þar sem ákveðin námskeið, sérstaklega þau sem eru í meistaranáminu, eru fyrr að fyllast heldur en önnur.

Á vorönn var nokkuð um það að farið væri með námskeið út á land og eru félagsmenn hvattir til að hafa samband við skrifstofu skólans til að kanna möguleikann á því að fá ákveðin námskeið til sín.