Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 14.-16. mars 2019.

Að þessu sinni hafa 28 faggreinar tilkynnt þátttöku sína á Íslandsmótinu. Keppendur munu takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Markmiðið með að halda svona keppni er að vekja áhuga grunnskólanemenda og annarra á iðn- og verknámi með því að láta ungt fólk sýna handbrögð og tækni sinnar greinar. Áhorfendur munu einnig fá tækifæri til að prófa hluti undir handleiðslu fagmanna í ýmsum greinum. Hér gefst tækifæri til að kynna sér spennandi starfsmöguleika í iðngreinum. 

Á svæðinu verður einnig framhaldsskólakynning þar sem 33 framhaldsskólar munu kynna fjölbreytt námsframboð, bæði verklegt og bóklegt, og svara spurningum viðstaddra. Þetta mun vera í þriðja sinn sem framhaldsskólakynning er haldin á sama tima og Íslandsmót iðn- og verkgreina. Von er á um 7000 grunnskólanemendum sem munu mæta á svæðið á skólatíma á fimmtudeginum og föstudeginum.

Gestir eru velkomnir á opnunartíma:

  • fimmtudagur 14.3. kl 9-17
  • föstudagur 15.3. kl 9-17
  • laugardagur 16.3. kl 10-16

 Sjá nánar á http://www.verkidn.is/