Nýr staðall ÍST-151 kemur út nú í sumar sem fjallar  um fjarkiptalagnir heimilannna, þ.m.t. sjónvarp, Internet, síma o.fl. Staðallinn skilgreinir hvernig ganga skal frá lögnum, þær mældar og niðurstöður skráðar í mælingarskýrslu. Rafiðnaðarskólinn býður upp á tvö ný námskeið um staðalinn. Rafiðnaðarskólinn býður næsta haugs upp á tvö ný námskeið um staðalinn:

 

1.   ÍST151 - Innanhúss fjarskiptakerfi
Þetta er námskeið sem er ætlað rafiðnaðarmönnum sem vinna við fjarskiptalagnir í húsum. Á námskeiðinu er leitast við að skýra fyrir þátttakendum mismunandi valmöguleika sem í boði eru varðandi fjarskiptaflutning innanhúss með strengjum (netstrengjum, coax, ljósleiðara) eða þráðlaust og kynna kosti þeirra og galla, til að gera þátttakendur færa um að vera ráðgefandi fyrir viðskiptavini sína í fjarskiptamálum. Einnig er gerð grein fyrir hönnun á dreifikerfum fyrir stærri byggingar og framkvæmdar mælingar og stillingar á búnaði fyrir slík kerfi.  
Á þessu námskeiði er ÍST151 staðallinn kynntur og unnið er mælingaverkefni sem þjálfa þátttakendur í að skila af sér skýslu að loknu verki, samkvæmt forskrift staðalsins.

Þetta er 3 daga námskeið.


2.   ÍST151 - Hönnun fjarskiptalagna
Þetta er námskeið sem er ætlað lagna- og kerfishönnuðum, sölumönnum á raflagnaefni og fyrir stjórnendum verka af þessu tagi. Á námskeiðinu er leitast við að skýra fyrir þátttakendum mismunandi valmöguleika sem í boði eru varðandi fjarskiptaflutning innanhúss með strengjum (netstrengjum, coax, ljósleiðara) eða þráðlaust og kynna kosti þeirra og galla, til að gera þátttakendur færa um að vera ráðgefandi fyrir viðskiptavini sína í fjarskiptamálum. Einnig er gerð grein fyrir hönnun á dreifikerfum fyrir stærri byggingar.
Á þessu námskeiði er reglur Póst-og fjarskiptastofnunar um verndun fjarskipta kynntar, farið ýtarlega í staðalinn ÍST151 og lögð áhersla á gerð lokaskýrslu fyrir vekið, samkvæmt forskrift staðalsins.

Þetta er 1 dags námskeið.