Raunfærnimat í rafiðngreinum miðar við þarfir einstaklinga sem hafa af einhverjum ástæðum ekki lokið því námi sem þeir hófu í rafvirkjun, rafvélavirkjun, rafveituvirkjun eða rafeindavirkjun. Greina stöðu þeirra, meta færni og gefa þeim kost á að ljúka því iðnnámi sem þeir hófu á sínum tíma.

Metin er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, námskeiðum og félagsstörfum.
Þátttakendur eiga þess kost að láta meta færni sem þeir hafa aflað sér utan skólakerfisins með raunfærnimati.

Kynningarfundur verður mánudaginn 14. janúar kl. 17:00
að Stórhöfða 27, 1. hæð í húsnæði Rafmenntar (gengið inn Grafarvogsmegin).

Nánari upplýsingar, umsóknareyðublöð o.fl. má finna hér!