Rafiðnaðarsamband Íslands - Samtök rafverktaka
Rafiðnaðarsamband Íslands - Samtök rafverktaka

 28 nóvember 2018

1500 öryggislásar afhentir til að draga úr hættu á slysum vegna rafmagns
Samtök rafverktaka, Samtök iðnaðarins, Rafiðnaðarsamband Íslands og Mannvirkjastofnun hafa tekið
höndum saman og afhent hátt í 1500 öryggislása til að draga úr hættu á slysum og óhöppum af völdum
óæskilegrar eða óvæntrar spennusetningar rafbúnaðar.
Kostaður við verkefnið er um 4 milljónir


Með því að afhenda öryggislásana er verið stíga stórt skref til þess að draga úr hættu á slysum.
Með notkun öryggislása getur starfsmaður tryggt að hann sé að vinna við búnað sem ekki er
spennuhafa. En um leið er verið vekja athygli starfsmanna á því að þeir bera ekki einungis ábyrgð á
eigin öryggi heldur þurfa þeir jafnframt að gera ráðstafanir til að tryggja öryggi annarra sem gætu
verið í hættu vegna þeirra vinnu eða bilunar í rafbúnaði.
Viðtökur hafa verið góðar og allir þeir sem nú þegar hafa fengið lása ætla að ganga úr skugga um að
þeir verði notaðir til að gera búnað spennulausan þegar verið er að vinna við hann.
Félagsmenn fá sendan öryggislás sér að kostnaðarlausu með því að skrá sig á "Mínum síðum" á
heimasíðu RSÍ og gefa þar upp nafn og GSM símanúmer.
Kjörorð verkefnisins er „Einn lás, eitt líf“


NÁNARI UPPLÝSINGAR

  • Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART, s. 894 4026, kristjan@si.is
  • Þór Pálsson, framkvæmdastjóri RAFMENNTAR, s. 659 1461, thor@rafmennt.is
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ, s. 856 3466, kristjan@rafis.is