Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir þá sem ætla sér að starfa sem byggingarstjórar og stýra byggingarframkvæmdum í samræmi við samþykktir, lög og reglur.
Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar. Fjallað er um byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld. Farið yfir hlutverk byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta, lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit.
Kynnt gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis-, stöðu- og lokaúttekta. Á námskeiðinu er kynnt og afhent Byggingarstjóramappa, en hún er vísir að gæðakerfi fyrir byggingarstjóra. Í mannvirkjalögum er gert ráð fyrir því að byggingarstjórar hafi gæðakerfi vegna starfa sinna.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Mannvirkjastofnun.
Staðbundið nám, - Vatnagörðum 20
19.mars – 13-17.00
20.mars – 09-13.00
Kennari: Magnús Sædal Svavarsson, byggingatæknifræðingur
Fullt verð | 45,000 |
RSÍ endurmenntun | 15,750 |
Samkomulagið gerir það að verkum að hægt er að bjóða félagsmönnum sem greiða í endurmenntunarsjóð námskeiðið á 65% afslætti
Heiti námskeiðs | Dags | Tími | Kennarar | Staðsetning | RSÍ endurmenntun | Skráning |
---|
Stórhöfða 27 - 110 Reykjavík - Sími: 540-0160 - rafmennt@rafmennt.is KT: 590104-2050