---
title: "Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun"
description: "Hlynur Gíslason lauk sveinsprófi í febrúar síðastliðnum aðeins 18 ára, þar með er hann yngsti próftaki sem hefur náð sveinsprófi í rafvirkjun. Hann hlaut því viðurkenningu frá Samtökum rafverktaka…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/yngstur-til-ad-na-sveinsprofi-i-rafvirkjun"
---

# Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun

12. október 2021

Hlynur Gíslason lauk sveinsprófi í febrúar síðastliðnum aðeins 18 ára, þar með er hann yngsti próftaki sem hefur náð sveinsprófi í rafvirkjun. Hann hlaut því viðurkenningu frá Samtökum rafverktaka (Sart) og Félagi íslenskra rafvirkja (FÍR) í samstarfi við Johan Rönning.

Hlynur Gíslason lauk sveinsprófi í febrúar síðastliðnum aðeins 18 ára, þar með er hann yngsti próftaki sem hefur staðist sveinsprófi í rafvirkjun.

Hann hlaut því viðurkenningu frá Samtökum rafverktaka (Sart) og Félagi íslenskra rafvirkja (FÍR) í samstarfi við Johan Rönning.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART, Pétur H. Halldórsson, formaður FLR og varaformaður SART, Hlynur Gíslason, sveinn í rafvirkjun, Margrét Arnarsdóttir, formaður FÍR og varaformaður RSÍ, Jón Ólafur Halldórsson formaður sveinsprófsnefndar, og Kristján Þ. Snæbjörnsson, formaður RSÍ.

**Í viðtali við Morgunblaðið 9. október 2021 var Hlynur spurður að því hvernig honum þætti að taka á móti slíkri viðurkenningu, hann svaraði því létt: „Allt í lagi svona, maður lætur sig hafa það að taka á móti henni.“**

![Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/f1b82e89-dbfe-40b0-92a3-7cc4b31ec49c)

Hlynur útskrifaðist frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti af rafvirkjabraut í desember 2020 og fékk viðurkenningu fyrir besta árangurinn á rafvirkjabraut en einnig viðurkenningu fyrir árangur sinn í dönsku og spænsku. Hlynur lauk síðan sveinsprófinu í febrúar síðastliðnum, þá á nemasamningi hjá Veitum.

**Þegar Hlynur var spurður í viðtalinu við Morgunblaðið um hvers vegna hann valdi nám í rafvirkjun sagði hann að nám í rafvirkjun væri hagnýt og nýtanleg menntun, sem hægt væri að nota víða.**

![Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/40f0d2c1-7ba6-409b-8458-49fa7a9c303f)

**RAFMENNT óskar Hlyni Gíslasyni velgengni í framtíðinni og öllu því sem hann mun taka sér fyrir hendur.**

![Yngstur til að ná sveinsprófi í rafvirkjun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/27156d59-285e-4729-8e7c-ecab8f275520)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/yngstur-til-ad-na-sveinsprofi-i-rafvirkjun
