---
title: "Xabier Þór sótti þrjár viðurkenningar fyrir árangur á sveinsprófi"
description: "Xabier Þór Tejero Landa, nýsveinn í rafeindavirkjun, kom við á skrifstofu Rafmenntar til að sækja viðurkenningar sínar fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/xabier-thor-sotti-thrjar-vidurkenningar-fyrir-arangur-a-sveinsprofi"
---

# Xabier Þór sótti þrjár viðurkenningar fyrir árangur á sveinsprófi

28. september 2026

Xabier Þór Tejero Landa, nýsveinn í rafeindavirkjun, kom við á skrifstofu Rafmenntar til að sækja viðurkenningar sínar fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.

Xabier Þór Tejero Landa gat ekki verið viðstaddur afhendingu sveinsbréfa á Hilton Reykjavík Nordica 18. september. Hann kom því við á skrifstofu Rafmenntar til að sækja sveinsbréfið og viðurkenningarnar sínar.

Árangur Xabiers á sveinsprófi í rafeindavirkjun var framúrskarandi. Hann hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur bæði á skriflegu og verklegu prófi, auk viðurkenningar fyrir besta heildarárangur. Þar með hlaut hann allar þrjár viðurkenningarnar sem veittar voru í rafeindavirkjun að þessu sinni.

Viðurkenningar fyrir bestan árangur á skriflegu og verklegu prófi voru veittar fyrir hönd Félags rafeindavirkja. Viðurkenning fyrir besta heildarárangur var veitt fyrir hönd SART – Samtaka rafverktaka.

Rafmennt óskar Xabier innilega til hamingju með glæsilegan árangur og velfarnaðar í störfum sínum.

![Xabier Þór sótti þrjár viðurkenningar fyrir árangur á sveinsprófi](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/4789dd00-192a-4f34-8ca1-a064fbb872d0)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/xabier-thor-sotti-thrjar-vidurkenningar-fyrir-arangur-a-sveinsprofi
