---
title: "Vinna í möstrum - Fallvarnir og félagabjörgun"
description: "Námskeiðið Vinna í möstrum - fallvarnir og félagabjörgun hefur verið sett á dagskrá aftur í haust! Farið er í hvernig vinna skal í rafmagns- og fjarskiptamöstum. Hvað þarf að hafa í huga við tryggja…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/vinna-i-mostrum-fallvarnir-og-felagabjorgun"
---

# Vinna í möstrum - Fallvarnir og félagabjörgun

27. september 2024

Námskeiðið Vinna í möstrum - fallvarnir og félagabjörgun hefur verið sett á dagskrá aftur í haust! Farið er í hvernig vinna skal í rafmagns- og fjarskiptamöstum. Hvað þarf að hafa í huga við tryggja sig, gera áhættumat og tryggja vinnusvæði. Áhersla er lögð á félagabjörgun. Kennsla er bæði bókleg og verkleg.

Námskeiðið Vinna í möstrum - fallvarnir og félagabjörgun hefur verið sett á dagskrá aftur í haust!

Farið er í hvernig vinna skal í rafmagns- og fjarskiptamöstum. Hvað þarf að hafa í huga við tryggja sig, gera áhættumat og tryggja vinnusvæði. Áhersla er lögð á félagabjörgun. Kennsla er bæði bókleg og verkleg.

Kennari styðst við gildandi evrópustaðla, sem taka á fallvarnar- og björgunarbúnaði, vinnu í kringum háspennulínur, vinnu við möstur, raf- og segulsvið í möstrum og aðra öryggisþætti fyrir vinnu í hæð.

Nemendur ættu að hafa með sér allan þann hlífðar- og varnarbúnað sem þeir nota við mastursvinnu, er þá átt við fallvarnarbelti, hjálma, öryggisskó, fall- og líflínur, rail-festur, akkeri og annan búnað. Á staðnum verður líka annar hlífðar- og varnarbúnaður.

Athugið að námskeiðið fer fram á ensku.

Skráning [hér.](https://www.rafmennt.is/namskeid/vinna-i-mostrum-fallvarnir-og-felagaborgun-i)

![Vinna í möstrum - Fallvarnir og félagabjörgun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/1445a5db-38f7-4011-a0ad-eab860995d04)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/vinna-i-mostrum-fallvarnir-og-felagabjorgun
