---
title: "Viðtal við Þór Pálsson í Bítinu í gærmorgun"
description: "Þór Pálsson, skólameistari Rafmenntar, ræddi markmið og næstu skref í viðtali á Bylgjunni."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/vidtal-vid-thor-palsson-i-bitinu-i-gaermorgun"
---

# Viðtal við Þór Pálsson í Bítinu í gærmorgun

6. maí 2025

Þór Pálsson, skólameistari Rafmenntar, ræddi markmið og næstu skref í viðtali á Bylgjunni.

Þór Pálsson, skólameistari og framkvæmdastjóri Rafmenntar, ræddi nýverin kaup Rafmenntar á Kvikmyndaskóla Íslands í morgunþættinum **Bítinu á Bylgjunni**. Í viðtalinu fór hann yfir ástæður kaupa, sameiginleg tækifæri skólanna og þá framtíðarsýn sem liggur að baki ákvörðuninni.

Að sögn Þórs eru kaupin liður í því að efla og dýpka framboð Rafmenntar á námi í skapandi greinum, í bland við þá tæknimenntun sem skólinn hefur þegar byggt upp. Hann bendir á að Kvikmyndaskólinn hafi átt sér trausta sögu og að markmiðið sé að halda áfram að þróa nám og starfsemi skólans með stöðugleika og fagmennsku að leiðarljósi.

📻 Hlusta má á viðtalið í heild á Vísi [hér](https://www.visir.is/k/a12d4d16-9d1c-4103-8248-ebdc3f7e5a7b-1746430991141).

![Viðtal við Þór Pálsson í Bítinu í gærmorgun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/4fa07765-9269-4e66-8db9-9c0ded92c4a6)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/vidtal-vid-thor-palsson-i-bitinu-i-gaermorgun
