---
title: "Vantar á annað þúsund rafvirkja og rafeindavirkja"
description: "Það er því ljóst að ef á að ná markmiðum um kolefnishlutleysi þarf að fjölga rafiðnaðarfólki og þá þurfa skólarnir meiri fjármuni til að geta skilað fleiri faglærðum í rafiðn út á vinnumarkaðinn"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/vantar-a-annad-thusund-rafvirkja-og-rafeindavirkja"
---

# Vantar á annað þúsund rafvirkja og rafeindavirkja

28. mars 2023

Það er því ljóst að ef á að ná markmiðum um kolefnishlutleysi þarf að fjölga rafiðnaðarfólki og þá þurfa skólarnir meiri fjármuni til að geta skilað fleiri faglærðum í rafiðn út á vinnumarkaðinn

Í nýlegri grein á fréttablaðið.is var fjallað um umræður á ráðstefnunni **Orkumál – horft til framtíðar** sem haldin var af Samtök rafverktaka, SART, í samstarfi við Samtök iðnaðarins þann 10. mars 2023.

Samkvæmt ávarpi Hjörleifs Stefánssonar, formanns Samtaka rafverktaka (SART) má ætla má að á annað þúsund rafvirkja og rafeindavirkja vanti til starfa hér á landi ef markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi á að ganga eftir fyrir árið 2040

Þar vitnaði hann í fulltrúa frá sænskum systursamtökum SART sem segir að þar í landi vanti 30 þúsund raftæknimenntaða iðnaðarmenn til starfa til að geta mætt loftslagsmarkmiðum sænsku ríkisstjórnarinnar í þessum efnum.

Í pallborðsumræðu í lok ráðstefnunar koma fram í máli Þórs Pálssonar, framkvæmdastjóra Rafmenntar, að framhaldsskólar á Íslandi eru nú þegar keyrðir á fullum afköstum, en þeir fullnýti fjárveitingar sem þeir fái til kennslu í iðngreinum. Fyrir vikið sé svo komið að fjölmargir komist ekki að í náminu því skólarnir hafa ekki fjármagn til að taka við fleiri nemendum.

Sáralítil nettó fjölgun er í greininni þó að um 120 til 150 manns ljúki að jafnaði sveinsprófi í rafiðngreinum á ári, á sama tíma eru hins vegar um það bil 100 rafiðnaðarmenn sem fara á eftirlaun. Rúmlega fimmtungur af þeim sem ljúka sveinsprófi halda áfram í framhaldsnám og þar með er einungis um að ræða árlega fjölgun um 10 til 5 rafiðnaðarmenn á vinnumarkaði.

„Það er því ljóst að ef á að ná markmiðum um kolefnishlutleysi þarf að fjölga rafiðnaðarfólki og þá þurfa skólarnir meiri fjármuni til að geta skilað fleiri faglærðum í rafiðn út á vinnumarkaðinn,“ segir Þór.

![Vantar á annað þúsund rafvirkja og rafeindavirkja](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/18bd438d-7bed-4ac8-b587-87f7a58ef32d)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/vantar-a-annad-thusund-rafvirkja-og-rafeindavirkja
