---
title: "Útskrift úr raunfærnimati"
description: "Í gær, mánudaginn 29. apríl, var hátíðisdagur hjá RAFMENNT þegar 15 þátttakendur útskrifuðust úr raunfærnimati í rafiðngreinum."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/utskrift-ur-raunfaernimati-vor-2019"
---

# Útskrift úr raunfærnimati

30. apríl 2019

Í gær, mánudaginn 29. apríl, var hátíðisdagur hjá RAFMENNT þegar 15 þátttakendur útskrifuðust úr raunfærnimati í rafiðngreinum.

Í gær, mánudaginn 29. apríl, var hátíðisdagur hjá RAFMENNT þegar 15 þátttakendur útskrifuðust úr raunfærnimati í rafiðngreinum. Meðalaldur þeirra að þessu sinni var 36,6 ár með, að meðaltali, 6 ára starfsreynslu úr faginu. Samtals luku þeir 151 einingu eða 59 áföngum sem gerir 6,7 einingar að meðaltali á mann. Sá sem fékk flestar einingar metnar lauk 29 einingum eða samtals 11 áföngum.

Við óskum öllum þátttakendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur! Gangi ykkur sem allra best með framhaldið.

![Útskrift úr raunfærnimati](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/28e63ee0-c1af-4228-a9a5-8ed2525505a0)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/utskrift-ur-raunfaernimati-vor-2019
