---
title: "Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024"
description: "Útskrift meistaranema, kvikmyndatækni og afhending sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn í sal Rafmenntar þann 20. desember."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/utskrift-rafmenntar-og-afhending-sveinsbrefa-desember-2024"
---

# Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024

21. desember 2024

Útskrift meistaranema, kvikmyndatækni og afhending sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn í sal Rafmenntar þann 20. desember.

**Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024.**

Útskrift meistaranema, kvikmyndatækni og afhending sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun voru afhend við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica þann 20. desember.

Dagskráin var glæsileg að vanda með ræðuhöldum og afhendingu viðurkenninga fyrir góðan árangur.

- 10 nemendur útskrifuðust úr Kvikmyndatækni.
- 29 meistaranema.
- 24 rafvirkjar luku sveinsprófunum að þessu sinni.
- 7 rafeindavirkjar útskrifuðust.

![Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/29e242cc-a344-4fa0-a68c-81da7deb6cb7)

![Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/6c9be4bd-905f-4fdb-80b0-1a863c6f7048)

![Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c2a1c71f-f441-4cb5-95e5-dbbfcc7f6334)

![Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e9a05487-8359-4a8c-8e3d-85a2269b57f4)

Dúx í Kvikmyndatækni var **Kristján Loftur Jónsson** og hlaut hann verðlaun frá **Stúdío Sýrlandi.**

**Félag Íslenskra Rafvirkja** veitti **Skafta Þór Einarsyni** verðlaun fyrir góðan árangur í **skriflega hluta** sveinsprófs og **Breka Gunnarssyni** fyrir **verklega hlutann**. **Breki Gunnarsson** fékk einnig verðlaun frá [SART](https://www.rafmennt.is/frettir/www.sart.is) fyrir **heildarárangur** á sveinsprófi í rafvirkjun

Verðlaun vegna góðs árangurs í sveinsprófum í rafeindavirkjun frá **Félagi Rafeindavirkja** hlutu **Albert Snær Guðmundsson** fyrir **skriflegan árangur** og **Jakob Bjarki Hjartarson** fyrir **verklegan árangur**. **Fyrir heildarárangur** á sveinsprófi í rafeindavirkjun hlaut **Albert Snær Guðmundsson** verðlaun frá **SART.**

Myndir frá athöfn má nálgast á [Flickr síðu](https://www.flickr.com/photos/rafmennt/albums/72177720322727243) Rafmenntar.

![Útskrift Rafmenntar og afhending sveinsbréfa desember 2024](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/222b92c5-a127-41ad-ab01-7711577752ac)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/utskrift-rafmenntar-og-afhending-sveinsbrefa-desember-2024
