---
title: "Rafmennt á UTmessunni 2025"
description: "Rafmennt tók þátt í UTmessunni síðastliðna helgi þar sem gestir gátu kynnt sér fjölbreytta þjónustu okkar. UTmessan er einn stærsti viðburður landsins á sviði upplýsingatækni og tækifæri fyrir…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/utmessan-2025"
---

# Rafmennt á UTmessunni 2025

12. febrúar 2025

Rafmennt tók þátt í UTmessunni síðastliðna helgi þar sem gestir gátu kynnt sér fjölbreytta þjónustu okkar. UTmessan er einn stærsti viðburður landsins á sviði upplýsingatækni og tækifæri fyrir fagfólk, nemendur og áhugasama til að fræðast um nýjustu strauma og stefnur í tæknigeiranum.

Á Utmessunni kynnti Rafmennt námsframboð sitt í rafiðnaði og kvikmyndatækni, auk sérhæfðra námskeiða fyrir tækni- og rafiðnaðarfólk. Margir sýndu áhuga á námsleiðum okkar, bæði á hefðbundnum fagnámskeiðum og almennum námskeiðum.

Gestir fengu einnig skemmtilegan varning á borð við jójó, minnisbækur og sundpoka með merki Rafmenntar, sem vakti mikla lukku.

Við þökkum öllum sem heimsóttu básinn okkar og hlökkum til að taka þátt í UTmessunni á næsta ári!

![Rafmennt á UTmessunni 2025](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/fd6effe4-7957-4d9d-beb8-7eb2b6337205)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/utmessan-2025