---
title: "Uppfærðar leiðbeiningar varðandi grímunotkun"
description: "Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar varðandi grímuskyldu í staðnámi til framhalds- og háskóla, þar sem RAFMENNT er fræðslusetur gilda nýju reglurnar einnig hér."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/uppfaerdar-leidbeiningar-vardandi-grimunotkun-fyrir-fraedslustofnanir"
---

# Uppfærðar leiðbeiningar varðandi grímunotkun

7. október 2020

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar varðandi grímuskyldu í staðnámi til framhalds- og háskóla, þar sem RAFMENNT er fræðslusetur gilda nýju reglurnar einnig hér.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar til framhalds- og háskóla, í ljósi nýrra tilmæla sóttvarnarlæknis um grímunotkun í staðnámi í framhalds- og háskólum.

Í leiðbeiningunum kemur fram að mælt er með fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk framhalds- og háskóla að nota grímur í skólabyggingum og í öllu skólastarfi.

Athugið að grímunotkun kemur ekki í staðinn fyrir nándarreglu um minnst eins metra fjarlægð milli fólks. Hlífðargríma kemur heldur ekki í stað almennra sýkingavarna sem alltaf skal viðhafa, þ.e. handhreinsun, almennt hreinlæti og þrif á snertiflötum.

![Uppfærðar leiðbeiningar varðandi grímunotkun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c833e6df-b4c5-4fb9-a6ea-820b324d9e3f)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/uppfaerdar-leidbeiningar-vardandi-grimunotkun-fyrir-fraedslustofnanir
