---
title: "Þróun gagnvirks kennsluefnis í tæknigreinum"
description: "Samstarf Rafiðnaðarskólans og FA. Rafiðnaðarskólinn og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa undirritað samning um að FA taki að sér verkefnastýringu og veiti kennslufræðilega ráðgjöf fyrir verkefnið…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/throun-gagnvirks-kennsluefnis-i-taeknigreinum"
---

# Þróun gagnvirks kennsluefnis í tæknigreinum

12. september 2017

Samstarf Rafiðnaðarskólans og FA. Rafiðnaðarskólinn og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa undirritað samning um að FA taki að sér verkefnastýringu og veiti kennslufræðilega ráðgjöf fyrir verkefnið Þróun gagnvirks kennsluefnis í tæknigreinum.

**Rafiðnaðarskólinn og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa undirritað samning um að FA taki að sér verkefnastýringu og veiti kennslufræðilega ráðgjöf fyrir verkefnið Þróun gagnvirks kennsluefnis í tæknigreinum.**

Markmið verkefnis er að þróa gagnvirkt kennsluefni til undirbúnings raunfærnimats og í námi eftir raunfærnimat í tæknigreinum. Helstu afurðir verkefnisins verða

- vefur sem heldur utan um fræðsluefni,
- leiðbeiningar til námsmanna um notkun og
- myndbönd þar sem teikningum er beitt til þess að lýsa hnitmiðuðum grunnatriðum í viðkomandi fagi á einfaldan hátt. Hverju myndbandi fylgir gagnvirk könnun á því hvernig þátttakanda hefur tekist að tileinka sér námsefnið.

Verkefnið hefst í september 2017 og því lýkur í september 2019.

![Þróun gagnvirks kennsluefnis í tæknigreinum](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/3835849f-699a-4687-839f-e996e287723d)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/throun-gagnvirks-kennsluefnis-i-taeknigreinum
