---
title: "Þjálfun nema á vinnustað - vinnustofa"
description: "Námskeið í samstarfi við Iðuna fyrir meistara og tilsjónarmenn nema á vinnustað."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/thjalfun-nema-a-vinnustad-vinnustofa"
---

# Þjálfun nema á vinnustað - vinnustofa

20. desember 2021

Námskeið í samstarfi við Iðuna fyrir meistara og tilsjónarmenn nema á vinnustað.

Námskeið í samstarfi við Iðuna

Verður haldið 11. janúar og 13. janúar frá 13:00 - 16:00 á Stórhöfða 27

**Þetta er gott námskeið fyrir meistara og tilsjónarmenn nema á vinnustað**

Áherslur námskeiðsins eru eftirfarandi:

- Mikilvægi fyrirmyndarhlutverksins
- Aðstæðubundin stjórnun
- Aðferðir jafningjastjórnunar
- Færni við að gagnrýna, leiðrétta og hrósa
- Ræða hlutverk meistara og tilsjónarmanns og væntingar sem nemar hafa
- Markmiðasetning sem aðferð til að ná árangri.

Í fyrri hlutanum er farið yfir hlutverk meistara og tilsjónarmanna í þjálfun nema. Fjallað er um Aðstæðubundna stjórnun sem rammar inn ferlið og ólíkar aðferðir sem varðar stjórnun og samskipti.

Í seinni hlutanum er farið yfir aðferðir sem nýtast vel til að ræða frammistöðu og við að gagnrýna, leiðrétta og hrósa. Áhersla er á lipurð og fagmennsku í aðstæðum þar sem búast má við að gagnrýnin verði erfið.

Skráning [hér](https://www.rafmennt.is/meistaraskolinn/nam/thjalfun-nema-a-vinnustad)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/thjalfun-nema-a-vinnustad-vinnustofa
