---
title: "Þátttakendur í fjarnámi og fjarkennslu þurfa að vera í mynd á meðan á kennslu stendur"
description: "Framvegis þurfa allir sem taka þátt í námskeiðum Rafmenntar sem kennd eru í gegnum Teams að vera í mynd á meðan á kennslu stendur."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/thatttakendur-i-fjarnami-og-fjarkennslu-thurfa-ad-vera-i-mynd-a-medan-a-kennslu-stendur"
---

# Þátttakendur í fjarnámi og fjarkennslu þurfa að vera í mynd á meðan á kennslu stendur

16. október 2025

Framvegis þurfa allir sem taka þátt í námskeiðum Rafmenntar sem kennd eru í gegnum Teams að vera í mynd á meðan á kennslu stendur.

Kæru nemendur!

Framvegis þurfa allir sem taka þátt í námskeiðum Rafmenntar sem kennd eru í gegnum Teams **að vera í mynd á meðan á kennslu stendur.**

Þetta er nauðsynlegt til að tryggja gæði kennslunnar og staðfesta virka þátttöku í náminu.

Einungis þeir sem uppfylla þetta skilyrði **fá viðurkenningu fyrir þátttöku** að loknu námskeiði.

Við hvetjum alla þátttakendur til að tryggja að myndavélin þeirra virki áður en námskeið hefst!

Virðingarfyllst,

Kennarar hjá Rafmennt.

![Þátttakendur í fjarnámi og fjarkennslu þurfa að vera í mynd á meðan á kennslu stendur](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/1f290122-88d4-4f16-9e3b-94fe9460563b)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/thatttakendur-i-fjarnami-og-fjarkennslu-thurfa-ad-vera-i-mynd-a-medan-a-kennslu-stendur
