---
title: "Tækifæri í framleiðslu og geymslu birtuorku á Íslandi"
description: "Fræðslufundurinn er tækifæri fyrir löggilta rafverktaka, frumkvöðla, stefnumótendur og aðra áhugasama um endurnýjanlega orkukosti og nýsköpun. Með því að miðla þekkingu og stuðla að umræðu um nýjar…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/taekifaeri-i-framleidslu-og-geymslu-birtuorku-a-islandi"
---

# Tækifæri í framleiðslu og geymslu birtuorku á Íslandi

26. september 2025

Fræðslufundurinn er tækifæri fyrir löggilta rafverktaka, frumkvöðla, stefnumótendur og aðra áhugasama um endurnýjanlega orkukosti og nýsköpun. Með því að miðla þekkingu og stuðla að umræðu um nýjar lausnir í orkumálum styðja Samtök rafverktaka við uppbyggingu sjálfbærs og framsýns iðnaðarumhverfis á Íslandi.

#### **Tækifæri í framleiðslu og geymslu birtuorku á Íslandi**

Samtök rafverktaka, Sart, bjóða áhugafólki um birtuorku á fræðslufund.

Fimmtudaginn 9. október kl. 12:00-13:00
Fundarstaður er Rafmennt, Stórhöfða 27, Reykjavík
Húsið opnar kl. 11:30 og boðið verður upp á matarmikla súpu fyrir fundargesti

**Á fundinum verður farið yfir m.a.:**

· Fýsileika þess að virkja og geyma birtuorku við íslenskar aðstæður

· Tæknileg atriði sem hafa þarf í huga

· Sölu birtuorku og leyfismál

· Gagnaskil og reglur HMS og veitufyrirtækja

**Dagskrá**
🔹 Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra og meðstofnandi Alor ehf.
🔹 Rúnar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Tengli ehf.
🔹 Óskar Frank Guðmundsson, sérfræðingur í rafmagnsöryggi hjá HMS.

**Skráning er nauðsynleg** – [Smelltu hér til að tryggja þér sæti](https://samtokidnadarins.cmail20.com/t/i-i-zlydilk-l-r/)

Fundinum verður einnig **streymt í beinni** fyrir þá sem ekki komast á staðinn, hlekk á streymið verður deilt á fundardegi til þeirra sem merkja við streymi í skráningunni.

Fræðslufundurinn er kjörið tækifæri fyrir löggilta rafverktaka, frumkvöðla, stefnumótendur og aðra áhugasama um endurnýjanlega orkukosti og nýsköpun. Með því að miðla þekkingu og stuðla að umræðu um nýjar lausnir í orkumálum styðja Samtök rafverktaka við uppbyggingu sjálfbærs og framsýns iðnaðarumhverfis á Íslandi.

Hægt er að nálgast myndir frá fundinum [hér](https://flic.kr/s/aHBqjCwRwy)!

![Tækifæri í framleiðslu og geymslu birtuorku á Íslandi](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/a45f2526-d80b-4201-97f7-6c00157de1e7)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/taekifaeri-i-framleidslu-og-geymslu-birtuorku-a-islandi
