---
title: "Sveinspróf í rafiðngreinum"
description: "Síðasti dagur til að sækja um sveinspróf (vegna prófa í júní 2019) er þriðjudagurinn 30. apríl. Sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun verða haldin í byrjun júní 2019. Umsóknartímabilið er 1.-30. apríl."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/sveinsprof-i-rafidngreinum"
---

# Sveinspróf í rafiðngreinum

28. apríl 2019

Síðasti dagur til að sækja um sveinspróf (vegna prófa í júní 2019) er þriðjudagurinn 30. apríl. Sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun verða haldin í byrjun júní 2019. Umsóknartímabilið er 1.-30. apríl.

**Athugið! Síðasti dagur til að sækja um sveinspróf (vegna prófa í júní 2019) er þriðjudagurinn 30. apríl.**

Opnað verður fyrir móttöku umsókna um sveinspróf í raf- og rafveituvirkjun mánudaginn 1. apríl nk. Umsóknartímabilið stendur yfir 1.-30. apríl vegna sveinsprófa sem haldin verða í byrjun júní 2019.

Umsækjandi þarf að hafa lokið samningsbundnu vinnustaðanámi og vera útskrifaður úr náminu. Með umsókn þarf að fylgja:

- Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla.
- Afrit af námssamningi.
- Lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnustaðanámi.

Óski próftaki eftir sérúrræði í sveinsprófi þarf að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Rafmenntar.

[Nánari upplýsingar um sveinsprófin og umsóknir má finna hér](https://www.rafmennt.is/sveinsprof).

![Sveinspróf í rafiðngreinum](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/32e7bcde-cbdd-44ee-8899-165b847cd023)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/sveinsprof-i-rafidngreinum
