---
title: "Sveinspróf í rafvirkjun febrúar 2024"
description: "Sveinspróf í rafvirkjun er haldið þessa dagana hjá Rafmennt í Reykjavík og í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Að þessu sinni eru 176 nemar sem þreyta prófið. En af þessum 176 eru 19 sem taka prófið á…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/sveinsprof-i-februar-2024"
---

# Sveinspróf í rafvirkjun febrúar 2024

8. febrúar 2024

Sveinspróf í rafvirkjun er haldið þessa dagana hjá Rafmennt í Reykjavík og í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Að þessu sinni eru 176 nemar sem þreyta prófið.

En af þessum 176 eru 19 sem taka prófið á Akureyri.

Þetta er langmesti fjöldi sem hefur þreytt sveinspróf í rafvirkjun í einu. Við óskum nemum velfarnaðar í prófinu og hlökkum til að afhenda þessum fjölda sveinsbréf sín.

![Sveinspróf í rafvirkjun febrúar 2024](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/e907bf06-c685-40d8-80c4-e9f512e56153)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/sveinsprof-i-februar-2024
