---
title: "Stóraukið samstarf atvinnulífs og skóla í vinnustaðanámi"
description: "Ný birtingarskrá yfir fyrirtæki, meistara og stofnanir sem bjóða vinnustaðanám verður hluti af rafrænni ferilbók og markar tímamót í þjónustu til nemenda."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/storaukid-samstarf-atvinnulifs-og-skola-i-vinnustadanami"
---

# Stóraukið samstarf atvinnulífs og skóla í vinnustaðanámi

24. nóvember 2021

Ný birtingarskrá yfir fyrirtæki, meistara og stofnanir sem bjóða vinnustaðanám verður hluti af rafrænni ferilbók og markar tímamót í þjónustu til nemenda.

**Opnun Birtingarskrár á morgun fimmtudag klukkan 11:00 sem kallar á stóraukið samstarf atvinnulífs og skóla í vinnustaðanámi**

Ný birtingarskrá yfir fyrirtæki, meistara og stofnanir sem bjóða vinnustaðanám verður hluti af rafrænni ferilbók og markar tímamót í þjónustu til nemenda.

**Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra** opnar birtingarskrá og fagnar þörfum og góðum breytingum á vinnustaðanámi í dag.
Um þessar mundir er verið að innleiða rafræna ferilskrá í öllu starfsnámi. Þar fara samskipti á milli skóla og vinnustaðar fram og þar er vitnisburðurinn um frammistöðu nema á vinnustað skráður. Vinnustaðanám í öllum iðngreinum hefur verið kortlögð og sú hæfni sem áskilin er fyrir hverja grein hefur verið brotin niður í verkþætti sem metnir eru á hverjum vinnustað og færð til bókar í rafrænni ferilbók.

Hægt verður að fylgjast með athöfninni í streymi:

**Streymislinkur:** **[https://bit.ly/3lqg1Qz](https://eur02.safelinks.protection.outlook.com/?url=https%3A%2F%2Fbit.ly%2F3lqg1Qz&amp;data=04%7C01%7Childur%40idan.is%7Ca0684ca4e6064633780808d9af35fcd5%7C59266489036c41e7ab6f357fb6772d40%7C0%7C0%7C637733468670327744%7CUnknown%7CTWFpbGZsb3d8eyJWIjoiMC4wLjAwMDAiLCJQIjoiV2luMzIiLCJBTiI6Ik1haWwiLCJXVCI6Mn0%3D%7C3000&amp;sdata=7pTfAYgphlkkJ7gaTfniZaE2%2Bck7htE%2F%2By4M1VWwtK4%3D&amp;reserved=0)**

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/storaukid-samstarf-atvinnulifs-og-skola-i-vinnustadanami
