---
title: "Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu"
description: "Nemastofa atvinnulífsins er samstarfsvettvangur RAFMENNTAR og IÐUNNAR fræðslusetur um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/stofnun-nemastofu-atvinnulifsins-og-formlega-opnud-heimasidu"
---

# Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu

5. apríl 2022

Nemastofa atvinnulífsins er samstarfsvettvangur RAFMENNTAR og IÐUNNAR fræðslusetur um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks.

**Nemastofa atvinnulífsins er samstarfsverkefni RAFMENNTAR fræðslusetur rafiðnaðarins og IÐUNNAR fræðsluseturs.**

Markmið Nemastofu er m.a. að fjölga fyrirtækjum og iðnmeisturum sem taka nema á vinnustaðanámssamning. Aðstoða fyrirtæki og iðnmeistara við að halda uppi gæðum vinnustaðanáms og markvissri kennslu og þjálfun iðnnema á vinnustað. Nemastofa tekur einnig þátt í að kynna iðn- og starfsnám á víðum grunni.

Nemastofa atvinnulífsins er samstarfsvettvangur samtaka í atvinnulífinu um bætt vinnustaðanám og fjölgun faglærðs starfsfólks. Markmið með Nemastofu atvinnulífsins er að fjölga fyrirtækjum og iðnmeisturum sem taka nema á vinnustaðanámssamning. Með tilkomu Nemastofu atvinnulífsins eykst yfirsýn yfir fjölda nemenda í vinnustaðanámi auk þess sem aðgengi nemenda að starfsnámi verður bætt og einfaldað.

**Stofnun Nemastofu atvinnulífsins að viðstöddum ráðherra var haldin í dag 5. apríl 2022 í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs.**

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/7bbbd7bc-b1b0-4399-99bb-3d4a7e140350)

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/fca0a8a8-7543-47a6-aa5b-39cfd23184ff)

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e0f15f91-5ab1-4e45-bcd5-440f21bf7d5e)

**Hildur Elín Vignir, framkvæmdarstjóri IÐUNNAR opnaði hátíðina.**

**Sigurður Hannesson framkvæmdarstjóri SI og Ásmundur Einar Daðason mennta og barnamálaráðherra fluttu ávörp.**

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/bff5931e-f7bc-433b-895f-8ef340da854f)

**Samkomulag milli Mennta- og barnamálaráðuneytis og Nemastofu var undirritað af Þór Pálssyni, framkvæmdarstjóra RAFMENNTAR, Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamálaráðherra og Hildar Elínar Vignir, framkvæmdarstjóra IÐUNNAR.**

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/304ffac9-f15b-411c-9df3-a46f6cf0006d)

**Viðstaddir hátíðina voru framafólk í iðnaði og atvinnulífinu.**

**[Hvatningaverðlaun Nemastofu atvinnulífsins](https://nemastofa.is/fyrirtaeki/hvatningaverdlun/)** **eru veitt fyrirtækjum sem hafa náð góðum árangri í þjálfun og kennslu nema á vinnustað og eru almennt góðar fyrirmyndir sem lærdómsfyrirtæki í viðkomandi faggreinum.**

**Hvatningaverðlaun Nemastofu atvinnulífsins 2022 hlutu fyrirtækin: Tímadjásn, bílaumboðið BL og TG raf**

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/c95e1963-9c60-4a37-af93-4b3f24d61ed6)

**Að lokum var heimasíða Nemastofu atvinnulífsins (nemastofa.is) formlega opnuð af Mennta- og barnamálaráðherra.**

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e665811f-e221-41d9-b9b3-fafb025f78dc)

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1200,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/02aa65ba-4d8e-46ed-9ae3-d31a70381d20)

[Hér má sjá fleiri myndir frá viðburðinum](https://www.flickr.com/photos/rafmennt/albums/72177720297879769)

![Stofnun Nemastofu atvinnulífsins og formlega opnuð heimasíðu](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/660cb55e-f38f-4743-9ea0-102a6f505a88)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/stofnun-nemastofu-atvinnulifsins-og-formlega-opnud-heimasidu
