---
title: "Skráning í meistaraskóla"
description: "Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nám í meistaraskóla rafiðna fyrir haustönn 2019. Skráningin fer fram í gegnum INNU."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/skraning-i-meistaraskola"
---

# Skráning í meistaraskóla

28. júní 2019

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nám í meistaraskóla rafiðna fyrir haustönn 2019. Skráningin fer fram í gegnum INNU.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um nám í meistaraskóla rafiðna fyrir haustönn 2019. Skráningin fer fram í gegnum [INNU](https://umsokn.inna.is/#!/chooseSchool).

Hér má finna ítarlegar [leiðbeiningar um skráninguna](https://www.rafmennt.is/media/id/236f0a88-366c-4200-90cf-a7746d0cfb89).

Í umsóknarferlinu birtist [fullt verð námskeiða](https://www.rafmennt.is/thjonusta/verdskra). Áður en þú sendir inn umsóknina merkirðu við hvort þú greiðir í endurmenntunarsjóð og er verðinu breytt handvirkt skv. því í innrituninni.

Nú er hægt að greiða með kredit- og/eða debetkorti og er dregið af kortinu **8 dögum áður** en námskeið hefst. Hér eru nánari upplýsingar um [greiðsluskilmála RAFMENNTAR](https://www.rafmennt.is/skilmalar).

![Skráning í meistaraskóla](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/419181d0-2fdf-4f66-acea-41308ea1cc38)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/skraning-i-meistaraskola
