---
title: "Skólagjöld Kvikmyndaskóla Íslands lækka um helming"
description: "Kvikmyndaskóli Íslands tekur til starfa á ný með lækkuð skólagjöld og nýtt húsnæði. Skólagjöldin hafa verið lækkuð um helming og eru nú 390 þúsund krónur á önn."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/skolagjold-kvikmyndaskola-islands-laekka-um-helming"
---

# Skólagjöld Kvikmyndaskóla Íslands lækka um helming

5. september 2025

Kvikmyndaskóli Íslands tekur til starfa á ný með lækkuð skólagjöld og nýtt húsnæði. Skólagjöldin hafa verið lækkuð um helming og eru nú 390 þúsund krónur á önn.

Kvikmyndaskóli Íslands tekur nú til starfa á ný eftir breytingar á rekstri. Skólagjöld hafa verið lækkuð um helming og nema nú 390 þúsund krónum á önn. Haustönn hefst 8. september í kvikmyndaveri Stúdíó Sýrlands við Vatnagarða þar sem nemendur munu stunda nám við fyrsta flokks aðstæður.

Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að endurbótum á húsnæðinu. Sett hafa verið upp fleiri kennslustofur og bætt aðstaða fyrir nemendur. Auk þess býður skólinn nú upp á mynd- og hljóðver, klippisvítur, hljóðvinnslurými og bíósal.

Skólinn hefur jafnframt hlotið viðurkenningu Menntasjóðs námsmanna sem lánshæfur skóli, sem tryggir nemendum aðgang að námslánum. Með þessum breytingum er stigið mikilvægt skref til að gera kvikmyndamenntun á Íslandi bæði aðgengilegri og öflugri.

Nánar um frétt á RÚV ➡️ [Skólagjöld lækka um helming](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-08-29-skolagjold-kvikmyndaskola-islands-laekka-um-helming-452097)

![Skólagjöld Kvikmyndaskóla Íslands lækka um helming](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/4080f72e-1b52-4652-9678-39b8f29588b8)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/skolagjold-kvikmyndaskola-islands-laekka-um-helming
