---
title: "Meistaranám í rafvirkjun og rafeindavirkjun"
description: "Meistaranám í rafiðngreinum er samtals 56 eininga nám, sem í stórum dráttum er skipt í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta. Almenni hlutinn er sameiginlegur öllum iðngreinum og skiptist hann…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/sjalfbodastorf-til-liberiu"
---

# Meistaranám í rafvirkjun og rafeindavirkjun

23. júlí 2015

Meistaranám í rafiðngreinum er samtals 56 eininga nám, sem í stórum dráttum er skipt í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta. Almenni hlutinn er sameiginlegur öllum iðngreinum og skiptist hann í almennt bóknám (10 einingar) og nám í stjórnunar- og rekstrargreinum (16 einingar). Nám í almenna hlutanum er hægt að sækja í framhaldsskólum víða um land.

| Meistaranám |
| --- |

| Meistaranám í rafiðngreinum er samtals 56 eininga nám, sem í stórum dráttum er skipt í tvo hluta, almennan hluta og sérgreinahluta.  **Almenni hlutinn** er sameiginlegur öllum iðngreinum og skiptist hann í almennt bóknám (10 einingar) og nám í stjórnunar- og rekstrargreinum (16 einingar). Nám í almenna hlutanum er hægt að sækja í framhaldsskólum víða um land. Eftirtaldir skólar bjóða upp á nám í almenna hlutanum: - [Fjölbrautarskóli Suðurlands](http://www.fsu.is/) - [Fjölbrautaskóli Suðurnesja](http://www.fss.is/) - [Fjölbrautaskóli Vesturlands](http://www.fva.is/) - [Fjölbrautaskólinn í Breiðholti](http://www.fb.is/) - [Tækniskólinn](http://tskoli.is/) - Verkmenntaskóli Austurlands - [Verkmenntaskólinn á Akureyr](http://www.vma.is/)i **Sérgreinahlutinn** (fagnámið) í meistaranámi rafiðnaðarmanna fer fram í námskeiðsformi í Rafiðnaðarskólanum og er samtals 30 einingar. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 7 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Flest fagnámskeiðin í Rafiðnaðarskólanum eru 3 daga námskeið. Hverjum áfanga í fagnámi iðnmeistaranáms skal ljúka með formlegu námsmati í samræmi við markmið og innihald áfangans. Nemendur í fagnámi meistaranáms Rafiðnaðarskólans ljúka hverju námskeiði með prófi, þar sem krafist er lágmarksárangurs. |
| --- |

![Meistaranám í rafvirkjun og rafeindavirkjun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/d7fc3c8f-64e5-4683-a007-119a15e69dc8)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/sjalfbodastorf-til-liberiu
