---
title: "Sameinuð félög í eitt Félag tæknifólks"
description: "Föstudaginn 30. október 2020 var haldinn stofnfundur í nýju sameiginlegu félagi þar sem þrjú félög renna saman í eitt: Félag tæknifólks í rafiðnaði/FTR, Félag sýningarstjóra við kvikmyndahús/FSK og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/sameinud-felog-i-eitt-felag-taeknifolks"
---

# Sameinuð félög í eitt Félag tæknifólks

5. nóvember 2020

Föstudaginn 30. október 2020 var haldinn stofnfundur í nýju sameiginlegu félagi þar sem þrjú félög renna saman í eitt: Félag tæknifólks í rafiðnaði/FTR, Félag sýningarstjóra við kvikmyndahús/FSK og Félag kvikmyndargerðarmanna/FK (kjarasviðs) í eitt félag: Félag tæknifólks.

Föstudaginn 30. október 2020 var haldinn stofnfundur í nýju sameiginlegu félagi þar sem þrjú félög renna saman í eitt: Félag tæknifólks í rafiðnaði/FTR, Félag sýningarstjóra við kvikmyndahús/FSK og Félag kvikmyndargerðarmanna/FK (kjarasviðs) í eitt félag: Félag tæknifólks.

Undirbúningur að sameiginlegu félagi þessara þriggja hefur staðið um langt skeið og þrátt fyrir að Covid hafi sett nokkuð strik í reikninginn þá voru gerðar samþykktir á aðalfundum félaganna 2018 og 2019 um sameiningu félaganna.

Félag tæknifólks er aðildarfélag að Rafiðnaðarsambandi Íslands og er annað stærsta aðildarfélag þess með yfir 1500 félaga sem vinna störf á ýmsum sviðum í fjölmiðla-, sviðlista- og tæknigreinum.

**Nýja stjórn skipa til 2023:**

Jakob Tryggvason, formaður
Hafliði Sívertsen
Hafþór Ólafsson
Páll S. Guðmundsson
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Elma Bjarney Guðmundsdóttir
Ragnar G. Guðmundsson

Varamenn:
Sigurjón Ólason
Elva Sara Ingvarsdóttir
Gunnar Ásgeirsson

Nánari upplýsingar [hér](https://www.ftr.is/2020/11/03/sameinud-felog-i-eitt-felag-taeknifolks/)

![Sameinuð félög í eitt Félag tæknifólks](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/6dbc5a8a-98fe-4426-910d-eb8e51fb336c)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/sameinud-felog-i-eitt-felag-taeknifolks
