---
title: "RAFMENNT tekur þátt í samstarfi um að efla og kynna háskólanám eftir iðnnám og aðra starfsmenntun"
description: "Í dag, mánudaginn 27. maí, undirritaði framkvæmdastjóri RAFMENNTAR, Þór Pálsson, viljayfirlýsingu um samstarf um að efla og kynna háskólanám með atvinnutengd lokamarkmið, eftir iðnnám og aðra…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-tekur-thatt-i-samstarfi-um-ad-efla-og-kynna-haskolanam-eftir-idnnam-og-adra-starfsmenntun"
---

# RAFMENNT tekur þátt í samstarfi um að efla og kynna háskólanám eftir iðnnám og aðra starfsmenntun

27. maí 2019

Í dag, mánudaginn 27. maí, undirritaði framkvæmdastjóri RAFMENNTAR, Þór Pálsson, viljayfirlýsingu um samstarf um að efla og kynna háskólanám með atvinnutengd lokamarkmið, eftir iðnnám og aðra starfsmenntun. Fulltrúar Háskólans í Reykjavík, Samtaka iðnaðarins, Tækniskólans, Iðunnar fræðsluseturs og RAFMENNTAR undirrituðu samkomulagið að viðstaddri Lilju Dögg Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmiðið með samstarfinu er m.a. að fjölga nemendum í iðnnámi, sem og þeim sem byggja háskólanám ofan á iðnnám. Einnig að efla upplýsingagjöf, m.a. með því að koma því kröftuglega á framfæri hversu góður undirbúningur iðnnám er fyrir margvíslegt tækninám á háskólastigi og hversu eftirsóttir starfskraftar með slíka menntun eru í atvinnulífinu. Síðast en ekki síst snýst samstarfið um að kortleggja þær leiðir sem til eru á milli þessara skólastiga í dag og að auðvelda og skilgreina leiðir á milli þeirra.

Um þróunarverkefni er að ræða sem á við iðnmenntun í byggingar-, málm-, vél-, bíl- og rafiðngreinum og háskólanám í Háskólanum í Reykjavík sem hentar í framhaldi af iðnnámi í þeim greinum. Um leið er stefnt að því að verkefnið geti orðið fyrirmynd sem hægt verði að yfirfæra á aðrar iðngreinar og starfsmenntun.

![RAFMENNT tekur þátt í samstarfi um að efla og kynna háskólanám eftir iðnnám og aðra starfsmenntun](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e81be01d-8a2c-45a4-940f-0bd3ac47a734)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-tekur-thatt-i-samstarfi-um-ad-efla-og-kynna-haskolanam-eftir-idnnam-og-adra-starfsmenntun