---
title: "Rafmennt styrkir Neyðarkall Landsbjargar 2025 ⛑️"
description: "Starfsfólk Rafmenntar tók í gær á móti Árna Árnasyni frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem afhenti Neyðarkallinn 2025. Með styrknum styður Rafmennt við mikilvægt og óeigingjarnt starf björgunarsveita…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-styrkir-neydarkall-landsbjargar-2025"
---

# Rafmennt styrkir Neyðarkall Landsbjargar 2025 ⛑️

6. nóvember 2025

Starfsfólk Rafmenntar tók í gær á móti Árna Árnasyni frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem afhenti Neyðarkallinn 2025. Með styrknum styður Rafmennt við mikilvægt og óeigingjarnt starf björgunarsveita um allt land.

**Rafmennt styrkir Neyðarkall Landsbjargar 2025 ⛑️**

Starfsfólk Rafmenntar tók í gær á móti Árna Árnasyni frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem afhenti **Neyðarkallinn 2025**. Með styrknum styður Rafmennt við mikilvægt og óeigingjarnt starf björgunarsveita um allt land.

Neyðarkall ársins 2025 er tileinkaður minningu **Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar**, og er hann í hlutverki **straumvatnsbjörgunarkalls** – sem minnir á mikilvægi öryggis og samstöðu þegar hætta steðjar að.

Rafmennt er stolt af því að taka þátt í þessu árlega átaki og leggja sitt af mörkum til að styrkja björgunarsveitir landsins.

![Rafmennt styrkir Neyðarkall Landsbjargar 2025 ⛑️](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/5d5cd5ce-46e7-4b5c-b479-27f132c45197)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-styrkir-neydarkall-landsbjargar-2025
