---
title: "Rafmennt í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2"
description: "Hér á landi hefur kvikmyndaiðnaðurinn vaxið gríðarlega síðustu árin og kvikmynda- og sjónvarpsgerð í örum vexti sem starfsgrein. Stúdíó Sýrland auglýsir nú í samvinnu við Rafmennt umsóknir til…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-i-vidtali-vid-siddegisutvarpid-a-ruv"
---

# Rafmennt í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2

3. maí 2024

Hér á landi hefur kvikmyndaiðnaðurinn vaxið gríðarlega síðustu árin og kvikmynda- og sjónvarpsgerð í örum vexti sem starfsgrein. Stúdíó Sýrland auglýsir nú í samvinnu við Rafmennt umsóknir til kvikmyndanáms.

Hér á landi hefur kvikmyndaiðnaðurinn vaxið gríðarlega síðustu árin og kvikmynda- og sjónvarpsgerð í örum vexti sem starfsgrein. Samhliða því hefur nám í kvikmyndatækni verið eflt og byggt á góðu samstarfi við atvinnulífið og fagfólk úr kvikmyndabransanum. Stúdíó Sýrland auglýsir nú í samvinnu við Rafmennt umsóknir til kvikmyndanáms og forvitnast var um stöðuna í íslenskum kvikmyndaiðnaði hjá Þór Pálssyni framkvæmdarstjóra Rafmenntar og Ingu Lind Karlsdóttur, eiganda framleiðslufyrirtækisins Skots.

Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni frá [01:03:00.](https://www.ruv.is/utvarp/spila/siddegisutvarpid/23825/7h2ion)

Við minnum á að enn er hægt að sækja um í kvikmyndatækni fyrir haustönn 2024 [hér.](https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/kvikmyndataekni)

![Rafmennt í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/cd6aab65-c1dd-465f-b1cf-f4b00ee5a95f)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-i-vidtali-vid-siddegisutvarpid-a-ruv
