---
title: "RAFMENNT hefur hlotið viðurkenningu Menntamálastofnunar"
description: "RAFMENNT hefur hlotið viðurkenningu Menntamálastofnunar"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-hefur-hlotid-vidurkenningu-menntamalastofnunar"
---

# RAFMENNT hefur hlotið viðurkenningu Menntamálastofnunar

19. október 2020

RAFMENNT hefur hlotið viðurkenningu Menntamálastofnunar

RAFMENNT hefur hlotið viðurkenningu Menntamálastofnunar sem fræðsluaðili til næstu þriggja ára.

Samkvæmt 7. gr. laga nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu veitir ráðherra, eða aðili sem hann felur það verkefni, fræðsluaðilum viðurkenningu til þess að annast framhaldsfræðslu.

Í slíkri viðurkenningu felst staðfesting á að starfsemi fræðsluaðilans uppfylli, á þeim tíma sem viðurkenningin er veitt, almenn skilyrði laganna og reglna sem settar eru með stoð í þeim.

Listi yfir fræðsluaðila sem hlotið hafa formlega viðurkenningu ráðuneytisins og annast raunfærnimat, náms- og starfsráðgjöf og námskeiðahald í framhaldsfræðslu er birtur á vef [Menntamálastofnunar](https://www.rafmennt.is/frettir/www.mms.is/vidurkenndir-fraedsluadilar).

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-hefur-hlotid-vidurkenningu-menntamalastofnunar
