---
title: "Rafmennt gengur í PLASA"
description: "Rafmennt gekk á dögunum í PLASA, alþjóðleg fagsamtök tæknifólks. PLASA er leiðandi alþjóðlegt aðildarfélag fyrir þá sem veita tækniþjónustu til viðburða- og skemmtanaiðnaðarins. Félagið styður…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-gengur-i-plasa"
---

# Rafmennt gengur í PLASA

23. febrúar 2024

Rafmennt gekk á dögunum í PLASA, alþjóðleg fagsamtök tæknifólks.

PLASA er leiðandi alþjóðlegt aðildarfélag fyrir þá sem veita tækniþjónustu til viðburða- og skemmtanaiðnaðarins. Félagið styður meðlimi sína með því að veita ráðgjafar- og stuðningsþjónustu þvert á iðnaðinn auk margvígslegra viðburða og námskeiða. Þar á meðal má nefna námskeið og NRC vottanir fyrir tæknifólk sem fæst við tímabundin burðarvirki.

Félagið heldur þar að auki fagsýningar og viðburði sem gefa félagsfólki færi á að eiga faglegt samtal um viðburðaiðnaðinn. Má þar helst nefna PLASA sýninguna í London sem fer fram 1 - 3 september í ár.

Fljótlega mun nemendum hjá Rafmennt bjóðast að gera meðlimir í PLASA án endurgjalds og um leið fá aðgang að fræðsluefni og fríðindum sem fylgja.

Með því að ganga í samtökin styrkir Rafmennt stöðu sína enn frekar sem leiðandi fræðslusetur fyrir fólk í tækni, miðlun og skapandi greinum.

![Rafmennt gengur í PLASA](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/97b246f0-284e-4a62-811a-f490d6f9c224)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-gengur-i-plasa
