---
title: "Rafmennt fjárfestir í búnaði fyrir tæknifólk"
description: "Rafmennt fjárfesti nýlega í truss-um og ljósabúnaði sem notaður verður við kennslu og fræðslu fyrir tæknifólk. Kaupin eru vítamínsprauta í eflingu verklegs náms fyrir tæknifólk en nú var fjárfest í…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-fjarfestir-i-bunadi-fyrir-taeknifolk"
---

# Rafmennt fjárfestir í búnaði fyrir tæknifólk

18. mars 2024

Rafmennt fjárfesti nýlega í truss-um og ljósabúnaði sem notaður verður við kennslu og fræðslu fyrir tæknifólk. Kaupin eru vítamínsprauta í eflingu verklegs náms fyrir tæknifólk en nú var fjárfest í truss-um frá Eurotruss og Martin ELP LED Par ljósum.

Ingi Bekk verkefnastjóri tækni, miðlunar og skapandi greina hjá Rafmennt segir kaupin mikilvægan fasa í langtíma stefnumótun og þróun náms hjá Rafmennt og bein viðbrögð við aukningu áhuga og ásóknar í námskeið fyrir tæknifólk hjá skólanum.

![Rafmennt fjárfestir í búnaði fyrir tæknifólk](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/8e4a232d-c95e-4e9a-be41-e96da79ca3da)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/rafmennt-fjarfestir-i-bunadi-fyrir-taeknifolk