---
title: "Ráðstafanir í Sveinsprófum febrúar 2022 vegna Covid-19"
description: "Breytingar á reglum varðandi gildandi takmarkanir út af Covid-19 vegna Sveinsprófa í febrúar 2022."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/radstafanir-i-sveinsprofum-februar-2022-vegna-covid-19"
---

# Ráðstafanir í Sveinsprófum febrúar 2022 vegna Covid-19

1. febrúar 2022

Breytingar á reglum varðandi gildandi takmarkanir út af Covid-19 vegna Sveinsprófa í febrúar 2022.

**Breytingar á reglum varðandi gildandi takmarkanir út af Covid-19 vegna Sveinsprófa í febrúar 2022.**

Vegna breytinga á takmörkunum um Covid-19 hefur verið ákveðið að þátttakendur þurfi **EKKI** að sýna niðurstöður úr hraðprófum, PCR prófum eða vottorð vegna nýlegrar sýkingar.

**Leyfilegt er að mæta í próf þó þátttakandi sé í smitgát en mikilvægt er að fylgja reglum sem eru í gildi varðandi** **[smitgát](https://www.covid.is/undirflokkar/smitgat)**

**Grímuskylda er á almennum svæðum nema á meðan á próftöku stendur.**

**Lögð skal áhersla á einstaklingsbundnar sóttvarnir**

Þátttakendur eru beðnir um að mæta ekki í prófin ef þeir finna fyrir einkennum Covid-19 (**[Covid.is](https://www.covid.is/undirflokkar/ad-fordast-smit)**), mjög mikilvægt er að senda tölvupóst strax á netfangið **[sveinsprof@rafmennt.is](mailto:sveinsprof@rafmennt.is)** ef þátttakandi kemst ekki í sveinsprófið vegna veikinda eða sóttkvíar.

**Farið verður eftir** **[gildandi takmörkunum](https://www.covid.is/undirflokkar/gildandi-takmarkanir)****varðandi Covid-19**

**Minnum á undirbúningsfundinn vegna Sveinsprófa 2.febrúar kl 16:30 á TEAMS.**

**Ekki verður í boði að mæta á fundinn í húsnæði RAFMENNTAR.**

Prófin hefjast mánudaginn 7. febrúar 2022

![Ráðstafanir í Sveinsprófum febrúar 2022 vegna Covid-19](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e5167a18-7c6a-4c2c-8bc3-bdef4234d6c8)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/radstafanir-i-sveinsprofum-februar-2022-vegna-covid-19
