---
title: "Prófsýning fyrir sveinspróf í rafvirkjun í júní 2024 📝"
description: "Prófsýning fyrir sveinsprófin í rafvirkjun verður haldin fimmtudaginn 4. júlí á Akureyri og föstudaginn 5. júlí í Reykjavík."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/profsyning-fyrir-sveinsprof-i-rafvirkjun-i-juni-2024"
---

# Prófsýning fyrir sveinspróf í rafvirkjun í júní 2024 📝

2. júlí 2024

Prófsýning fyrir sveinsprófin í rafvirkjun verður haldin fimmtudaginn 4. júlí á Akureyri og föstudaginn 5. júlí í Reykjavík.

Prófsýning fyrir sveinsprófin í rafvirkjun verður haldin fimmtudaginn 4. júlí á Akureyri og föstudaginn 5. júlí í Reykjavík.
Sveinprófstakar geta komið og skoðað prófin sín og hitt sveinsprófsnefnd.
Einkunnarblöð verða afhend á prófsýningu, þeir sem ekki sjá sér fært að mæta fá einkunnir sendar í tölvupósti eftir að prófsýningu lýkur.
Fimmtudaginn 4. júlí 2024 verður sýning prófúrlausna fyrir Sveinsprófin á Akureyri Kl 16:30 - 18:00 í Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hringteig 2 (gengið inn hjá rafmagnsdeildinni), 600 Akureyri.
Föstudaginn 5. júlí 2024 verður sýning prófúrlausna fyrir Sveinsprófin í Reykjavík Kl 13:00 - 14:30 hjá RAFMENNT að Stórhöfða 27 (gengið inn Grafarvogs megin), 110 Reykjavík.

![Prófsýning fyrir sveinspróf í rafvirkjun í júní 2024 📝](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/2a2b5422-1983-49dc-8331-fe37b56f2b77)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/profsyning-fyrir-sveinsprof-i-rafvirkjun-i-juni-2024
