---
title: "Prófsýning fyrir sveinspróf í rafvirkjun í febrúar 2024 📝"
description: "Prófsýning fyrir sveinsprófin í rafiðngreinum verður haldin fimmtudaginn 7. mars á Akureyri og föstudaginn 8. mars í Reykjavík."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/profsyning-fyrir-sveinsprof-i-rafidngreinum-i-februar-2024"
---

# Prófsýning fyrir sveinspróf í rafvirkjun í febrúar 2024 📝

29. febrúar 2024

Prófsýning fyrir sveinsprófin í rafiðngreinum verður haldin fimmtudaginn 7. mars á Akureyri og föstudaginn 8. mars í Reykjavík.

**Prófsýning fyrir sveinsprófin í rafvirkjun verður haldin fimmtudaginn 7. mars á Akureyri og föstudaginn 8. mars í Reykjavík.**

Sveinprófstakar geta komið og skoðað prófin sín og hitt sveinsprófsnefnd.

Einkunnarblöð verða afhend á prófsýningu, þeir sem ekki sjá sér fært að mæta fá einkunnir sendar í tölvupósti eftir að prófsýningu lýkur.

Fimmtudaginn 7. mars 2024 verður sýning prófúrlausna fyrir Sveinsprófin á Akureyri

Kl 16:30 - 18:00 í Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hringteig 2 (gengið inn hjá rafmagnsdeildinni), 600 Akureyri.

Föstudaginn 8. mars 2024 verður sýning prófúrlausna fyrir Sveinsprófin í Reykjavík

Kl 13:00 - 14:30 hjá Rafmennt að Stórhöfða 27 (gengið inn Grafarvogs megin), 110 Reykjavík.

![Prófsýning fyrir sveinspróf í rafvirkjun í febrúar 2024 📝](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/bbe0f27f-932c-4e2b-b4d7-2fb30e6d08cf)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/profsyning-fyrir-sveinsprof-i-rafidngreinum-i-februar-2024
