---
title: "Öryggisvitund á netinu 🔒"
description: "Námskeiðið hentar öllum sem hafa samskipti á netinu. Þátttakendur munu að loknu námskeiði vera færir um góða hegðun á netinu og í samskiptum. Þeir munu þekkja hættur á netinu og í símaskilaboðum og…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/oryggisvitund-a-netinu"
---

# Öryggisvitund á netinu 🔒

26. febrúar 2024

Námskeiðið hentar öllum sem hafa samskipti á netinu. Þátttakendur munu að loknu námskeiði vera færir um góða hegðun á netinu og í samskiptum. Þeir munu þekkja hættur á netinu og í símaskilaboðum og hvernig hægt er að bregðast við þeim. Leiðbeinendur koma frá netöryggisfyrirtækinu Syndis, sem er leiðandi fyrirtæki sem hjálpar til við að veita stofnunum og fyrirtækjum nýstárlegar öryggislausnir.

**Áfangaheiti: ALMN04ÖRNET**

Námskeiðið er í boði bæði í stað- og fjarkennslu!

**Um námskeiðið:**
Internetið inniheldur ógrynni upplýsinga og er vettvangur til ýmissa notkunar og misnotkunar.

Það er margt sem ber að varast á Internetinu. Óprúttnir aðilar hafi komið sér upp ýmsum aðferðum og verkfærum til að misnota og ráðast á

persónuleg gögn hins almenna notanda. Þar að auki er notandinn sjálfur helsti veikleikinn þegar kemur að netöryggi.

En hvað geta notendur gert til að þekkja og forðast hættur á Internetinu?

Skráning og nánari upplýsingar [hér!](https://www.rafmennt.is/namskeid/oryggisvitund-a-netinu)

![Öryggisvitund á netinu 🔒](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/f18c6f9e-5852-45ee-bec2-3c29fae13dba)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/oryggisvitund-a-netinu
