---
title: "Öryggisskóli Iðunnar og Rafmenntar í undirbúningi"
description: "Í kvöldfréttum RÚV þann 19. september kom fram að Iðan og Rafmennt vinna nú að stofnun öryggisskóla, sem verður opnaður á nýju ári."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/oryggisskoli-idunnar-og-rafmenntar-i-undirbuningi"
---

# Öryggisskóli Iðunnar og Rafmenntar í undirbúningi

25. september 2024

Í kvöldfréttum RÚV þann 19. september kom fram að Iðan og Rafmennt vinna nú að stofnun öryggisskóla, sem verður opnaður á nýju ári.

Í kvöldfréttum RÚV þann 19. september kom fram að Iðan og Rafmennt vinna nú að stofnun öryggisskóla, sem verður opnaður á nýju ári.

Skólinn mun leggja áherslu á öryggismál í mannvirkjagerð og tengdum greinum. Markmiðið er að efla menntun og þjálfun fagfólks í öryggismálum til að tryggja aukið öryggi á vinnustöðum.

Þetta er stórt skref í átt að því að bæta vinnuumhverfi og stuðla að öflugri öryggismenningu innan iðnaðarins. Við hlökkum til að kynna verkefnið frekar á næstu misserum og viljum hvetja alla sem hafa áhuga á að fylgjast með þróun þess í gegnum miðla okkar.

Fréttina má horfa á [hér.](https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/ag9n87/langtum-fleiri-slys-her)

![Öryggisskóli Iðunnar og Rafmenntar í undirbúningi](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=auto/https://media.rafmennt.is/web/ef9d0f83-1cde-4242-9aec-47da720086e4)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/oryggisskoli-idunnar-og-rafmenntar-i-undirbuningi
