---
title: "Orkumál - horft til framtíðar"
description: "Samtök rafverktaka, SART, í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu í Háteig á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 10. mars kl. 13.30-15.00."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/orkumal-horft-til-framtidar"
---

# Orkumál - horft til framtíðar

6. mars 2023

Samtök rafverktaka, SART, í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu í Háteig á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 10. mars kl. 13.30-15.00.

Samtök rafverktaka, SART, í samstarfi við Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu í Háteig á Grand Hótel Reykjavík **föstudaginn 10. mars kl. 13.30-15.00**. Á ráðstefnunni verður farið yfir stöðu og þörf í orkuinnviðum á Íslandi í ljósi loftslagsmarkmiða. Gefin verður innsýn í nýja tækni vindorku og sólarorku og horft til þess hvaða færni fagfólk þarf að búa yfir í framtíðaruppbyggingu orkuinnviða.

**Dagskrá**

- **Opnunarávarp** Hjörleifur Stefánsson, formaður SART
- **Staða orkuinnviða** Lárus M. K. Ólafsson, sérfræðingur í orku- og umhverfismálum hjá SI
- **Aukin orkunýting** Eymundur Sigurðsson, rafmagnsverkfræðingur M.Sc
- **Beislun vindorku á Íslandi - tækifæri og áskoranir** Kristinn Arnar Ormsson, raforkuverkfræðingur M.Sc
- **Sólarorka** Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar
- **Orkan í fólkinu okkar** Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal
- **Umræður** Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, stýrir umræðum með þátttöku eftirtaldra: Hannes Garðarsson, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóri Rafeyri, Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar, og Egill Jóhannsson, forstjóra Brimborgar
- **Samantekt og lokaorð** Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- **Fundarstjóri** Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART

[Skráning](https://www.si.is/upplysingar-og-utgafa/a-dofinni/skraning/nanar/1958)

![Orkumál - horft til framtíðar](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/df747385-ceae-4d33-852e-f263e7633913)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/orkumal-horft-til-framtidar
