---
title: "Opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni á haustönn 2025!"
description: "Nú er opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni hjá Rafmennt fyrir haustönn 2025. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa á bak við tjöldin í kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu – hvort sem það er við…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-i-kvikmyndataekni-a-haustonn-2025"
---

# Opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni á haustönn 2025!

7. maí 2025

Nú er opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni hjá Rafmennt fyrir haustönn 2025. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa á bak við tjöldin í kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu – hvort sem það er við tökur, hljóð, lýsingu eða annan tæknibúnað sem notaður er í faglegri framleiðslu.

Opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni á haustönn 2025!

Nú er opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni hjá Rafmennt fyrir haustönn 2025. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa á bak við tjöldin í kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslu – hvort sem það er við tökur, hljóð, lýsingu eða annan tæknibúnað sem notaður er í faglegri framleiðslu.

Námið er bæði verklegt og bóklegt og veitir trausta undirstöðu fyrir frekara nám eða störf í kvikmynda- og sjónvarpsbransanum. Kennt er af reyndum fagfólki úr greininni og lögð er áhersla á raunveruleg verkefni og vinnubrögð sem endurspegla starfsvettvanginn.

**Fyrir hverja er námið?**
Námið hentar öllum sem hafa áhuga á kvikmyndatækni og vilja kynnast störfum á bak við myndavélina – hvort sem viðkomandi hefur reynslu fyrir eða ekki. Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskóla og vera orðnir 18 ára.

Skráning og nánari upplýsingar um námið má finna [hér!](https://www.rafmennt.is/framhaldsskoli/kvikmyndataekni)

![Opið fyrir umsóknir í kvikmyndatækni á haustönn 2025!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/3d8705ed-2971-4627-aa05-1f0d27b2310b)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-i-kvikmyndataekni-a-haustonn-2025
