---
title: "Opið fyrir umsóknir til 20. ágúst í Kvikmyndaskóla Íslands"
description: "Kvikmyndaskóli Íslands býður nýjum nemendum að hefja skapandi og hagnýta námsferð í heimi kvikmynda, sjónvarps og stafrænna miðla. Umsóknarfrestur stendur til 20. ágúst 2025."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-i-kvikmyndaskola-islands-umsoknarfrestur-til-20-agust"
---

# Opið fyrir umsóknir til 20. ágúst í Kvikmyndaskóla Íslands

12. ágúst 2025

Kvikmyndaskóli Íslands býður nýjum nemendum að hefja skapandi og hagnýta námsferð í heimi kvikmynda, sjónvarps og stafrænna miðla. Umsóknarfrestur stendur til 20. ágúst 2025.

Skólinn býður uppá 4 námsbrautir sem sameina fræðilega þekkingu og verklega reynslu undir handleiðslu reyndra kennara og fagfólks úr kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum. Námið hentar bæði þeim sem stefna á atvinnuferil í greininni og þeim sem vilja efla færni sína á skapandi sviði.

Nemendur fá tækifæri til að vinna að raunverulegum verkefnum, þróa eigin hugmyndir og mynda tengslanet sem nýtist í framtíðarstarfi.

Nánari upplýsingar um námið og skráning inná vefsíðu Kvikmyndaskóla Íslands - [https://www.kvikmyndaskoli.is/](https://www.kvikmyndaskoli.is/)

Umsóknarfrestur stendur til 20. ágúst.

[Video](https://www.youtube-nocookie.com/embed/UP9Yy5NdyDQ)

![Opið fyrir umsóknir til 20. ágúst í Kvikmyndaskóla Íslands](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/f6fd553d-1776-4af2-b4c5-cf7a24beb2ec)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/opid-fyrir-umsoknir-i-kvikmyndaskola-islands-umsoknarfrestur-til-20-agust
