---
title: "Opið er fyrir umsóknir í vinnustaðanámssjóð til 26. nóvember"
description: "Fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi eiga rétt til að sækja um styrk."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/opid-er-fyrir-umsoknir-i-vinnustadanamssjod-til-23-november-kl1500"
---

# Opið er fyrir umsóknir í vinnustaðanámssjóð til 26. nóvember

3. nóvember 2021

Fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi eiga rétt til að sækja um styrk.

**Umsóknarfrestur er til 26. nóvember 2021**

Fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi eiga rétt til að sækja um styrk.

Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila sem ber ábyrgð á námi nemanda á vinnustað.

Aðeins eru veittir styrkir til náms- eða starfsþjálfunar í greinum á grundvelli aðalnámsskrár framhaldskóla.

Almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og námssamningur og starfsþjálfunarsamningur skulu vera fyrirliggjandi. Sækja þarf um í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

[Nánari upplýsingar á vef Rannís](https://www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/nr/9)

[Leiðbeiningar](https://www.rafmennt.is/media/id/7aad5d6a-7cbc-4f42-b3f4-e37579953075)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/opid-er-fyrir-umsoknir-i-vinnustadanamssjod-til-23-november-kl1500
