---
title: "Opið er fyrir umsóknir í Sveinspróf raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun í febrúar 2023"
description: "Opið er fyrir umsóknir í Sveinspróf raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun í febrúar 2023. Umsóknarfrestur er 1. - 31. mars 2022"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/opid-er-fyrir-umsoknir-i-sveinsprof-raf-rafveitu-og-rafvelavirkjun-i-februar-2023"
---

# Opið er fyrir umsóknir í Sveinspróf raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun í febrúar 2023

1. nóvember 2022

Opið er fyrir umsóknir í Sveinspróf raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun í febrúar 2023. Umsóknarfrestur er 1. - 31. mars 2022

#### **Umsóknarfrestur er 1. - 30. nóvember 2022**

#### **Eingöngu tekið við umsóknum í gegnum heimasíðu RAFMENNTAR**

[SKRÁNING](https://umsokn.inna.is/#!/applynow/o/OA8F02BEEE4B6CCB31CC9630F7D3FD9D0E45723441B26F539AFAEB660EBDC663A)

#### **Með umsókn skal fylgja:**

**Fylgiskjöl frá nemum á námssamning:**

Umsækjandi þarf að vera útskrifaður úr náminu og hafa lokið vinnustaðanámi samkvæmt **námssamningi** sem tók gildi fyrir 1. ágúst 2021.

Með umsókn þarf að fylgja:

- [Umsókn meistara/fyrirtækis um sveinspróf fyrir nema á námssamning](https://www.rafmennt.is/um-sveinsprof/undirbuningurfyrirsveinsprof/eydublod-vardandi-sveinsprof)
- Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla.
- Lífeyrissjóðsyfirlit til staðfestingar á vinnustaðanámi.

**Fylgiskjöl frá nemum í rafrænni ferilbók:**

Umsækjandi þarf að vera útskrifaður úr náminu og hafa lokið vinnustaðanámi samkvæmt **ferilbók**.

Með umsókn þarf að fylgja:

- Afrit af brautskráningarskírteini úr skóla.
- Staðfesting á að vinnustaðanámi sé lokið samkvæmt ferilbók

#### **Nánari upplýsingar**

Nánari upplýsingar má finna undir [sveinspróf](https://www.rafmennt.is/um-sveinsprof/sveinsprof-i-reykjavik)

Fyrirspurnir má senda á gudmundur(hjá)rafmennt.is

![Opið er fyrir umsóknir í Sveinspróf raf-, rafveitu- og rafvélavirkjun í febrúar 2023](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/fa369629-2a63-4616-b522-0e365e5d65ae)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/opid-er-fyrir-umsoknir-i-sveinsprof-raf-rafveitu-og-rafvelavirkjun-i-februar-2023
