---
title: "Nýtt námskeið! Tæknileg verkefnastjórnun viðburða"
description: "Námskeiðið er sett saman til að veita þér innsýn og grunnþekkingu sem þarf til að stýra flóknum verkefnum á skilvirkan og faglegan hátt – allt frá fyrstu hugmynd að afhendingu og uppgjöri."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nytt-namskeid-taeknileg-verkefnastjornun-vidburda"
---

# Nýtt námskeið! Tæknileg verkefnastjórnun viðburða

25. júní 2025

Námskeiðið er sett saman til að veita þér innsýn og grunnþekkingu sem þarf til að stýra flóknum verkefnum á skilvirkan og faglegan hátt – allt frá fyrstu hugmynd að afhendingu og uppgjöri.

Nýtt námskeið á dagskrá hjá Rafmennt fyrir tæknifólk í haust!

Námskeiðið er sett saman til að veita þér innsýn og grunnþekkingu sem þarf til að stýra flóknum verkefnum á skilvirkan og faglegan hátt – allt frá fyrstu hugmynd að afhendingu og uppgjöri. Á námskeiðinu kynnumst við lykilverkfærum eins og heilaga þríhyrningnum (scope–time–cost), Gantt- og WBS-uppsetningum, áhættumati og breytingastjórnun sem tryggja fullkomna yfirsýn og stöðugan framgang verkefna til að hámarka nýtingu tíma og peninga.

Kennari á námskeiðinu er G. Orri Rósenkranz verkefnastjóri sem hefur áralanga reynslu af tæknilegri hönnun, skipulagningu og verkefnastjórn viðburða af öllum stærðum og gerðum.

Nánar um námskeið og skráning [hér!](https://www.rafmennt.is/namskeid/taeknileg-verkefnastjornun-vidburda-og-skapandi-greina)

![Nýtt námskeið! Tæknileg verkefnastjórnun viðburða](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/d48bcffd-9821-449a-a7cb-65dd3230fa3d)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nytt-namskeid-taeknileg-verkefnastjornun-vidburda
