---
title: "Nýr framkvæmdastjóri Rafmenntar"
description: "Nýr framkvæmdastjóri Rafmenntar"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nyr-framkvaemdarstjori-rafmenntar"
---

# Nýr framkvæmdastjóri Rafmenntar

16. apríl 2018

Nýr framkvæmdastjóri Rafmenntar

Í ársbyrjun ákváðu stjórnir Rafiðnaðarskólans og Fræðsluskrifstofunnar að auka formlegt samstarf milli félaganna undir heitinu **RAFMENNT, fræðslusetur rafiðnaðarins.**

Nú hefur Þór Pálsson verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá RAFMENNT. Þór starfaði síðast sem aðstoðarskólameistari Tækniskólans, skóla atvinnulífsins, og þar áður sem áfangastjóri Iðnskólans í Hafnafirði í tólf ár. Hann er með meistarapróf í kennslufræði með áherslu á stjórnun (MEd). Auk þess er hann með sveinspróf í vélvirkjun, C réttindi í vélstjórn og iðnmeistari í rennismíði.

Hann hefur setið í stjórn Verkiðnar og verið í framkvæmdastjórn Íslandmóts iðn- og verkgreina, setið í starfsgreinaráði og verið frumkvöðull í þróun iðnmenntunar undanfarin ár. Þór hefur störf í aprílmánuði og bjóðum við hann velkominn til starfa.

Þá hefur verið gerður starfslokasamningur í kjölfar skipulagsbreytinganna við skólastjóra Rafiðnaðarskólans og hefur hann þegar látið af störfum. Eru Stefáni þökkuð góð störf í þágu skólans.

![Nýr framkvæmdastjóri Rafmenntar](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/f67f8346-3296-4b49-bb8c-ce9021e30098)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nyr-framkvaemdarstjori-rafmenntar
