---
title: "Nýnemar rafiðngreina í VMA fengu afhenta nýnemagjöf!"
description: "Nýnemar í rafiðngreinum við Verkmenntaskólann á Akureyri fengu á dögunum afhentar glænýjar vinnubuxur frá Rafmennt."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-vma-fengu-afhent-vinnubuxur"
---

# Nýnemar rafiðngreina í VMA fengu afhenta nýnemagjöf!

3. nóvember 2025

Nýnemar í rafiðngreinum við Verkmenntaskólann á Akureyri fengu á dögunum afhentar glænýjar vinnubuxur frá Rafmennt.

Nýnemar í rafiðngreinum við Verkmenntaskólann á Akureyri fengu á dögunum afhentar glænýjar vinnubuxur frá Rafmennt, það var framkvæmdastjóri Rafmenntar Þór Pálsson sem afhenti nemendum buxurnar.

Buxurnar eru frá Helly Hansen, sem er þekkt fyrir gæði og þægindi í vinnufatnaði.

Rafmennt leggur ríka áherslu á að styðja við unga iðnnema um land allt. Nýnemagjöfin hefur notið mikilla vinsælda og hafa nemendur haft gagn og gaman af buxunum bæði í námi og á verklegum vettvangi.

![Nýnemar rafiðngreina í VMA fengu afhenta nýnemagjöf!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/af86c08e-6a28-4f1b-a40a-3aa213c83aa1)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-vma-fengu-afhent-vinnubuxur
