---
title: "Nýnemar FVA fá afhentar vinnubuxur"
description: "Guðmundur Jónsson, verkefnastjóri sterkstraums hjá Rafmennt afhenti nýnemum í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Vesturlands glænýjar og vandaðar vinnubuxur. Buxurnar eru frá Helly Hansen sem er…"
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-fva-fa-afhentar-vinnubuxur"
---

# Nýnemar FVA fá afhentar vinnubuxur

9. september 2024

Guðmundur Jónsson, verkefnastjóri sterkstraums hjá Rafmennt afhenti nýnemum í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Vesturlands glænýjar og vandaðar vinnubuxur.

Buxurnar eru frá Helly Hansen sem er viðurkennt merki í vinnufatnaði.

Rafmennt hefur síðustu ár stutt við nemendur sem hefja nám í rafiðngreinum um allt land með því að gefa þeim nýnemagjöf. Nemendur hafa verið mjög ánægðir með gjöfina og hafa vinnubuxurnar reynst þeim einstaklega vel í námi og starfi.

![Nýnemar FVA fá afhentar vinnubuxur](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/e376eb8f-2f40-453d-ac7c-7b5d3b4abc11)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-fva-fa-afhentar-vinnubuxur
