---
title: "Nýnemar FVA fá afhentar vinnubuxur"
description: "Nýnemar í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fengu afhentar glænýjar og vandaðar vinnubuxur."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-fva-fa-afhentar-vinnubuxur-1"
---

# Nýnemar FVA fá afhentar vinnubuxur

25. september 2025

Nýnemar í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fengu afhentar glænýjar og vandaðar vinnubuxur.

Rafmennt afhenti nýnemum í rafiðngreinum við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi glænýjar og vandaðar vinnubuxur.

Buxurnar eru frá Helly Hansen sem er viðurkennt merki í vinnufatnaði.

Rafmennt hefur síðustu ár stutt við nemendur sem hefja nám í rafiðngreinum um allt land með því að gefa þeim nýnemagjöf. Nemendur hafa verið mjög ánægðir með gjöfina og hafa vinnubuxurnar reynst þeim einstaklega vel í námi og starfi.

![Nýnemar FVA fá afhentar vinnubuxur](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/11c4ca66-05a7-4a7a-b541-067a99ab92bf)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-fva-fa-afhentar-vinnubuxur-1
