---
title: "Nýnemar FSU fengu afhentar vinnubuxur!"
description: "Rafmennt heimsótti nýverið Fjölbrautaskóla Suðurlands og afhenti nýnemum í rafiðngreinum vinnubuxur til að styðja þá á fyrstu skrefum í náminu."
canonical: "https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-fsu-fengu-afhentar-vinnubuxur-1"
---

# Nýnemar FSU fengu afhentar vinnubuxur!

1. desember 2025

Rafmennt heimsótti nýverið Fjölbrautaskóla Suðurlands og afhenti nýnemum í rafiðngreinum vinnubuxur til að styðja þá á fyrstu skrefum í náminu.

Þór Pálsson heimsótti nýverið Fjölbrautaskóla Suðurlands og afhenti nýnemum í rafvirkjun vinnubuxur til að styðja við fyrstu skrefin í náminu. Nemendur tóku gjöfinni fagnandi og sögðust hlakka til að nota buxurnar í verklegum tímum. Nýnemagjöfin er orðin kærkominn liður í stuðningi Rafmenntar við ungt fólk sem velur sér rafiðnir.

![Nýnemar FSU fengu afhentar vinnubuxur!](https://www.rafmennt.is/cdn-cgi/image/width=1080,quality=82,fit=cover,format=webp/https://media.rafmennt.is/web/5784cf7d-9975-4c56-8e54-0e20e7441e76)

Source: https://www.rafmennt.is/frettir/nynemar-fsu-fengu-afhentar-vinnubuxur-1
